10.10.2006 10:09:15 / Ragga

SVERRIR, O.C, LCD, BUMBUBÚI, RAGGA JENS, JÓLIN, KONFEKT, SVERRIR......

Góðan og blessaðan daginn, ég var sko ekki tilbúin að vakna í skólann í morgun, ógeðsleg rigning og grátt veður, farið að dimma úti sem gerir mér lífið afskaplega leitt. Sverrir fór seinasta laugardag til London, í akademíu að læra nýjar klippingar og á sýningu. Hann kemur ekki heim fyrr en um miðnætti næsta sunnudag, ég sakna hans alveg fáranlega mikið :(

Nema þá er bara um að gera að líta á björtu hliðarnar í lífinu og það er sko svo sannarlega nóg af þeim í mínu ;)

...Sverrir minn kemur heim næsta sunnudag með O.C seríu 3, jeijjj fullkominn pakki Sverrir og O.C. ég þarf ekkert annað í lífinu, nema kannski fáránlega flotta 37" LCD skjáinn sem pabbi gaf mér um daginn ;) híhí
...Ásdís besta vinkona mín og Kári besti vinur minn eiga von á barni saman, hversu frábært er það!? ...Hún er komin nákvæmlega 19.vikur í dag og er sett í 7.mars. Ég get lofað ykkur guðdómlega fallegu barni þar, enda mun það eiga guðdómlega fallega og góða foreldra... :)
...Ég fór á silfursmíðinámskeið um helgina, wow wow wow hvað ég er skjöggalegur silfursmiður hehe... Ég gerði 3 skartgripi á námskeiðinu og er það klárt mál að ef Jens og Hansína Jens myndu sjá þá myndu þau vilja ættleiða mig og kalla mig Röggu Jens ;) gott að fara á svona námskeið til að stytta stundirnar þangað til Sverrir kemur heim................Ég fór svo í gær og keypti mér allar græjurnar sem til þarf í silfursmíðina og ætla að dúlla mér við þetta fyrir jólin, þá vita allir hvað þeir fá í jólagjöf frá mér híhí...
...Ég og Sverrir ætlum svo að fara í konfektnámskeið hjá Hafliða, súkkulaðimanninum fræga í nóvember og gera konfektið fyrir jólin :)
...Jólin Jólin Jólin, ég get bara ekki beðið!!! Ég er svo rosalega mikið jólabarn að það er ekki fyndið, það kom fyrir mig í fyrsta skipti seinustu jól frá því að ég var 12 ára að ég var á lausu um jólin, það var hræðilegt hehe, sem betur fer verð ég ekki á lausu þessi jól né nein jól héðan í frá því ég hef Sverri :)

Jæja nú ætla ég að fara að læra svo ég verði nú einhverntíma stúdent á lífsleiðinni... Hasta la vista beibís... xxx


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 11:14:44 / Ragga

Hola. Yo Soy bajita y gordita. :)

Jæja það er að verða ár síðan ég bloggaði síðast, ákvað að blogga einu sinni svona af því að það fer að líða að jólum eins og í síðasta bloggi, jíjí...sem er gott því...

 ...Ég nefnilega vaknaði í morgun, að vísu með hjálp Sverris, því eins og þeir sem þekkja mig vita, þá á ég alveg rosalega erfitt með að vakna á morgnana.....En þegar ég vaknaði kemur þessi jólafílingur yfir mig...ég svona fann hvað var kalt og dimmara en venjulega úti (útvarpið var sett á og kaffi tilbúið) hhehe sem er svona ritual til að vekja Röggu litlu. Ég sat með kaffibolla og sígó á meðan Sverrir slétti á mér hárið (sem allir kærastar ættu by the way að læra) hehe nema ég var raulandi jólalög í hausnum og langaði helst til að fara út og finna jólatré til að skreyta það. Núna er ég í skólanum og hef ótrúlega þörf til þess að ákveða hvaða jólakökur ég ætla að baka fyrir þessi jól. Jeijei...

...Sólin fyrir Jólin...Ég er að standa mig sköööggalega vel í skólanum núna, enda er mánuður þangað til við förum til Spánar í frívikunni minni, þangað ætla ég sko með góða skóla-samvisku. Ég bara get ekki beðið að komast í sólina svona smá fyrir jólin, kannski versla e-ð að jólagjöfunum þar og bara fá smá lit fyrir jólin :)

...Helgin var rosalega fín, ekki hægt að segja annað.

...Á föstudeginum var svaka fjölskylduboð heima, eitthvað um 50 manns. Þar var mikið borðað, mikið drukkið, mikið talað saman og skemmt sér. Þar á eftir fórum við í þrítugsafmæli Munda og hittum Siggu, Hödda, Binga, Lottu, Jónda, Stefý, Jóhann óskar, Kári og að vísu miklu fleiri en þetta er svona fólk worth mentioning :)... Þar var sko mikið tjúttað, Hljómur hélt uppi fjörinu og voru aldeilis tekin nokkur spor á dansgólfinu, þaðan ákváðum við Sigga systir að draga kallana niður í bæ og var stefnan sett á Barinn til Krabbans (Krissi helmassaði tvíburabróðir Sverris). Þar hitti ég Helen sætu og dönsuðum við eins og brjálæðingar. Við Helen ákváðum að draga Sverrir heim til að spjalla og vorum við nonstop til kl.5 þá var stefnan sett á draumalandið.

...Á laugardeginum bauð pabbi okkur í Perluna ásamt mömmu, ömmu, afa, Elaine frænku frá NY, Atla og Sunnu. Sverri varð óglatt því Perlan snerist hahahhahaha... :D það fannst mér best. En þetta var fáránlega nice dinner hjá famelíunni. Ég sagði Elaine söguna á bakvið Víkinginn í glerbúrinu, sem er s.s. þannig að hann var fyrrverandi kærastinn minn en pabbi þoldi hann ekki svo hann lét uppstoppa hann og setja hann í glerbúr. Ég er ekki frá því að hún hafi trúað mér for an instant. ;) Þegar maturinn var búinn fórum við í Garðsendann, kvöldið var enn óráðið svo við Sverrir settum bara Gipsy Kings á fóninn, dönsuðum og hlógum í alveg 2 tíma og drukkum jú líka soldið heh... Fórum á Barinn í leit af Mr.Robocat, fundum hann vera að stinga einhverja pólska af, útaf hans gríðarlega pólska orðaforða nema kvöldið var bara geggjað... við skriðum heim frekar seint og Robbi hinn mikli með okkur, þeir lentu á svo rosalegu trúnó að ég stakk af inní rúm. Ég var búin að láta þá fíla lagið "I´m in Chains" með Tinu Arenu, svo þeir voru þarna maskular men með kellingalagið mitt nánast á repeat. heh. algjörir englar.

...Á sunnudeginum vakna ég við símann kl.11, pabbi að minna mig á fjallgöngu Hraðbraut sem gilti fyrir 4 leikfimistíma. Ég var alveg harðákveðin að fara á fætur en ákvað bara að dreyma mig vera í göngunni þangað til Raggi bekkjarbróðir minn hringir kl.11:45 og segist vera að koma að sækja mig og við að fara í göngu eftir korter.. ég í föt og út, svona smá þynnka í minni en þegar við komum á leiðarenda var okkur sko ekki til setunnar boðið, bara hobbhobb heddtúþrífor.....eftir smá vorum við villt á fjallinu og fundum einn nýnema liggjandi búin að snúa fótinn og með asmakast...þetta var smá ævintýri. En svakalega var gott að koma heim.

Já gott fólk, ég er komin til að vera í þetta skipti, ætla ekki að bíða þangað til jólin 2007 með næsta blogg. Svo fer ég líka alveg að nenna að henda inn myndum, en eins og alltaf á ég nóg að þeim enda alltaf með myndavélina með mér. Ég er byrjuð að setja hárlengingar... Fyrir þær stelpur sem ætla í neglur hjá mér fyrir jólin þá verð ég komin snemma í jólafrí í des og ætla að troða eina viku bara í það. Ég var að byrja í spænsku, fáránlega skemmtilegt tungumál. Svo ég segi bara: Adiós chicos. Hasta luego :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.11.2005 14:13:15 / Ragga

.....Jólin eru alveg að koma.....jeijj........!

Jæja gott fólk, ég er klárlega búin að vera að drukkna í námi og hef ekki haft minnsta tíma að blogga... en ég er í seinustu lotu fyrir jól núna, sem er mjög gott.... ég er rosa jólabarn í mér og get ég ekki beðið eftir jólunum, í hvert skipti þegar ég sé jólaskraut í búðargluggum fer ég að syngja jólalög og baka smákökur í huganum :) jeijj....

Pabbi og syskini hans voru að kaupa hús á Spáni, það er nýbyggt, 4 herbergja með 2 svölum og sundlaug......yeahh.......garðurinn er svo þannig, að hægt er að nota sólina frá morgni til kvölds...svo er allt sem maður þarf á næstu grösum....gæti það gerst eitthvað betra? Express var actually að byrja að selja ferðir til alicante á skít.. sem þýðir ekkert annað en að þar sem ég er í vikufríi sjöttu hverja viku þá mun ég klárlega kalla þetta annað heimili mitt..

Dengsi sem bjó í New York ásamt mörgum ættmönnum mínum var að kveðja þennan heim á þriðjudagskvöldið:cry:, hann er að vísu bróðir afa míns en var mér alltaf nokkurn veginn annar afi...sem betur fer náði ég að hitta hann í New York núna í sumar, en hann var tilbúinn að fara enda orðinn mikið veikur.. Mamma og pabbi eru núna í NY til að vera viðstödd í jarðarförinni. Ef það væri ekki svona ógeðslega mikið að gera í skólanum hefði ég án efa farið með....:!:

Ég er nánast hætt að láta sjá mig í bænum um helgar, mér leiðist hann alveg rosalega... nema þegar við sigga systir sitjum með kaffið okkar að horfa á fólkið þar blindfullt og hlægja af þeim.

Þegar ég fer í jólafrí sem er 9.des, ætla ég að bjóða mömmu með mér til Köben að kaupa jólagjafir.... Við erum nefnilega rosalega duglegar að versla saman við mæðgur. ;)

En það er stærðfræði próf á morgun svo það er best að byrja að nota minn svona líka afar skarpa heila og reikna...

Veriði dugleg að kíkja á bloggið og kommenta....

Ok elskurnar mínar....... Love Ragga xxx

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 15:38:17 / Ragga

Það sem hefur á daga mína drifið.....

Jú...loksins nenni ég að blogga. Er búnað vera óvenju löt uppá síðkastið... Ég fór seinustu helgi á sálarball í Hlégarði. Við byrjuðum heima hjá Siggu systur. Þangað kom allt fallega fólkið og hitaði upp fyrir ballið ;) ...ég var rosalega dugleg að hella í mig hvítvíni og eplasnafsi í partýinu og orðin alveg blekuð þegar lagt var af stað á ballið...Ég var berleggjuð í stystu útgáfu af pilsi sem má kallast pils svo ég ruddist með Lottu framfyrir alla röðina... Á leiðinni inn rifnaði rifan af miðanum mínum og gaurinn í dyrunum ætlaði ekki að hleypa mér inn en þá fyrir ótrúlega heppni hafði gaurinn misst einhverja rifu af öðrum miða í gólfið og ég benti bara á hana og sagði að þetta væri mín og hann hleypti mér inn...sem betur fer. Ég kom þarna inn og það voru ábyggilega um 500 manns þarna, þvílíkt troðið og ömurlegt... ég sá ekki sálina en heyrði í þeim.. og stakk svo bara af með vini mínum eftir hálftíma... Svo var bara leti á sunnudeginum eins og venjulega....

Við Ásdís og Kári fórum á subway um daginn og þar sá ég í fyrsta skipti þroskahefta manneskju í fýlu, það var hræðilegt... Hann var hágrátandi, kallandi á mömmu... Mig langaði svo að fara að knúsa hann að það var djók.....

Vó ætlaði að skrifa fullt en talvan batteríslaus og ég get ekki sett hana í samband nálægt mér....svo ég skrifa bara meira næst... Later


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 17:30:20 / Ragga

.....Fyrsta 10an og nýtt extra tyggjó!

Jæja já...búið að vera svo voða mikið að gera hjá mér í skólanum að ég er ekki búnað hafa tíma til að blogga. Var í prófaviku í seinustu viku úr þessum 3 fögum - upplýsingatækni stærðfræði og tjáningu, náði öllu og fékk meira að segja fyrstu lokaeinkunnina 10 í minni menntaskólagöngu í upplýsingatækni, voðalega ánægð með það... ég fór um helgina uppí sumarbústað með kára, ásdísi, elenu og alla, frábær helgi í alla staði, ágætt að komast í svona rólegheit annað slagið. tjahh rólegheit og ekki rólegheit hehe.... allavega krakkar takk fyrir góða helgi!  Ég smakkaði nýja bleika Extra tyggjóið um helgina, við erum að tala um meistaraverk hérna. það er sykurlaust gott fyrir tennurnar strawberry hahha strawberry ásdís STRAWBERRY!? allavega þá er það á bragðið eins og sóðalegt húbba búbba tyggjó, vil hvetja alla til að tyggja svona!... hmm... Ég er í fríviku núna í þessari viku og var ég að pæla að taka nokkrar stúlkur í neglur, svo ef ykkur vantar neglur veriði fljótar að hringja og panta tíma...

Litla frænka hennar Ásdísar hún Silja og vinkonur hennar voru að bjarga mannslífi, algjörar hetjur, getið séð það í morgunblaðunu og á mbl.is http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1159230 

Ætla að fara að nota þetta frí mitt á skynsamlegri hátt en þetta.. Later!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.09.2005 00:56:38 / Ragga

...I love you...I love you...I love you...I do...!!!

Ég bara elska þetta lag út í gegn...Distractions með Zero 7...

Myndasíðan er búnað vera meira um minna niðri í dag vegna ofnotkunar, gaman að sjá að þið séuð að reyna að skoða myndirnar mínar anyways.. Hún hlýtur að fara að unblockast þessi blessaða síða, þetta eru um 850 myndir á síðunni og tók þetta helvíti langan tíma fyrir þær að uploadast og notaði ég andvöku mína í fyrrinótt til að gera þetta. Ég stefni á að sofa eitthvað í nótt, þó það verði ekki nema 2-3 tímar það er betra en ekki neitt! ...ég er svo þreytt að það er bara djók! Ég var að dusta rykið af gömlum utanaðliggjandi hörðum disk sem ég á, þar fann ég ótrúlegustu myndir, gömul bréf frá fyrrverandi, uppáhaldslögin mín í denn, bíómyndir, ALLAR Friends-seríurnar og fleira til... merkilega gaman að fara í gegnum þetta!

Skammdegið byrjað, versti tími á árinu fyrir mig...Ég hreinlega hata það.. allt e-ð svo dimmt og þungt...Ég borða yfirleitt mikið á þeim tíma og fitna a whole lot svo ég er að byrja hjá einkaþjálfara með henni Nínu frænku ekki seinna en á morgun, ætla að jarða það við fæðingu að ég eigi eftir að fitna! Been there done that, ekkert sniðugt! Ég fæ alltaf vikufrí inn á milli lotna í skólanum og mun ég defi. reyna að komast eitthvert í sólina einhverja frívikuna. Finnst líka erfitt að vera á lausu í skammdeginu og hafa engan til að kúra með yfir þetta þunga tímabil. Og líka þar sem ég er búnað vera í sambandi frá því ég vissi hvað skammdegi var hahaha!!!

Næstu tvær helgar eru þaulskipulagðar hjá tjellunni og félögum... Ekkert annað en skemmtilegheit á næstunni...

Fór virkilega að pæla í því í dag hvað ég er ROSALEGA glysgjörn...allt sem glitrar heillar mig..."there´s a lady who´s sure, all that glitter´s is gold..." that lady is me!!! var líka að henda glingrinu mínu í "skartgripaskrínið" mitt og þegar maður horfir á það er það eins og fjársjóðskista, það glitrar svo mikið. Verð að fara að passa mig svo ég endi ekki eins og jólatré. ;)

Ef þið eruð andvaka...náið ykkur þá í lögin Distractions með Zero 7 og Roads með Portishead...það er ekki einu sinni smekksatriði, það fíla þetta allir,  þetta virkar, þó það virki ekki á mig síðastliðna daga, en við erum að tala um INSOMNIU hérna megin, svo kannski ekki furða!

Góða nótt gott fólk, megið þið eiga ljúfa drauma í andvöku minni... :$


» 98 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 09:05:32 / Ragga

LOKSINS...!

Ég er loksins búnað henda inn myndum af djamminu, Færeyskum dögum, New York ferðinni og Verslunarmannahelginni. Ef þið hafið áhuga á að skoða þær farið þá á http://www.fotki.com/raggabjarna1 eða Myndasíða1 hér til vinstri í Ýmislegt.....

Helgin var mjög fín...Á föstudeginum byrjuðum við fjögur heima hjá mér að drekka ég, Ásdís, Kári og Davíð Jón. Tókum svo leigubíl í bæinn, sóttum Elenu og Alla í leiðinni og fórum á Hverfis.. Þar var ágætis stemmning...bara þetta venjulega. Á Laugardagskvöldinu fór ég með mömmu, Siggu systur, Ástu, Lottu og Sunnu kærustu Atla bróður í leikhús á Brilliant skilnað...ég gat ekki ýmindað mér að þetta yrði e-ð skemmtilegt þar sem hún myndi vera ein á sviðinu allan tímann, en þetta kom mér rosalega á óvart, var bara mjög fyndið og skemmtilegt. Svo ætlaði ég á Ljósanótt með Ásdísi, Kára, Elenu og Alla en ákvað að fara frekar í bæinn með Siggu systur, kíktum fyrst á Sólon og fórum svo á Rex. Skemmtum okkur bara mjög vel fyrir utan eitt tequila staup sem sem ég hefði átt að sleppa :) Svo var bara Sunnudagurinn letidagur eins og venjulega...  Later...Rag´s


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2005 09:23:51 / Ragga

Eins og hugsað út úr mínum heila???

Á miðvikudeginum um 6 leytið ætlaði ég að leggja mig, vegna þess hversu rosalega þreytt ég hefði verið allan daginn...Ég sofnaði en vaknaði bara ekki fyrr en á fimmtudagsmorguninn, svaf sem sagt í 13 tíma..sem var ekki svo gott því ég ætlaði svo að njóta þess að reykja eins og strompur að kl 12 á miðvikudagskvöldi þar sem ég ætlaði að hætta að reykja á fimmtudeginum 1.sept. (í gær s.s). Mæti ég svo í skólann, engan vegin tilbúin að hætta og ekki með neitt closure á þennan slæma ávana. Í öðrum tíma kemur yfirsetukennarinn minn og segir að skólastjórinn sé að safna öllu reykingarfólki á sal skólans, ótrúlegur fjöldi þar á ferð by the way. Ég þykist ekki ganga undir hóp reykingamanna og ákveð að fara ekki í salinn, þar til kallinn kemur til mín og segir "ég hef séð þig laumast annað slagið út, þú munt ekki sjá eftir þessum fundi!" ég hálfvandræðaleg segi eins og ansi: "en...en ég var að hætta í morgun.." hann hló og sagði mér að drífa mig og ég staulaðist inn í sal... Þá kom að því. Það fyrsta sem skólastjórinn spyr hópinn er hvað margir þar inni vilji hætta að reykja...Allir nema ein stelpa rétta upp hönd, hann missti nánast andlitið og sagðist ætla að fá aðstoð að hætta að reykja fyrir okkur öll fljótlega sem mynda hjálpa okkur að hætta og halda því við...LÍKURNAR PÍKURNAR!!! ...Að sjálfsögðu var það fyrsta sem ég gerði, að hlaupa út í sjoppu og kaupa sígó, þar sem ég er að fá hjálp við þetta. Af hverju ekki að notfæra sér það... þannig að ég hef sirka hálfan mánuð til að anda að mér tjöru og skít...veijj! :) þetta hentaði sér ágætlega...en jiii hvað ég verð ánægð þegar ég er hætt. Sígó og ég er ekki alveg að gera sig, hreinlega ekki týpan í þetta kjaftæði. 

Ég er góða, saklausa stelpan sem reyki ekki og fæ mér annaðslagið í glas.. heh, kannski spurning um að fara að finna sjálfa mig? ;)

Love...Innocent Ragga.....


» 108 hafa sagt sína skoðun

31.08.2005 14:38:35 / Ragga

Ragga Aumingjagóða...!

Jújú ég er búnað komast að því að ég er ein aumingjabesta manneskja sem til finnst á landinu. Hingað til hef ég seglað að mér aumingja eins og hinn öflugasti segull... Aumingjar sem vorkenna sjálfum sér og geta ekki gert neitt rétt, ég lendi í því að vorkenna þeim og vera góð við þá en þeir eru svo miklir aumingjar að þeir fatta ekki hvað ég er góð við þá að þeir bera enga virðingu fyrir mér né alfarið öðrum. Ég sem er svo auðtrúa, held alltaf að aumingjar eigi svo erfitt og ég geti hjálpað þeim að vera ekki aumingjar en nei það er ekki hægt. Believe you me! Ég gef aumingjum alltaf allt of marga sénsa en en hef ákveðið að gera það ekki framar.  Allir...meira að segja aumingjar eiga skilið second chance en það eru ekki til fleiri en eitt second chance!!! þetta var ég að læra og hér eftir verður líf mitt aumingjalaust að öllu leyti... vinir ykkar geta verið mestu aumingjar og ef þeir svíkja þig og biðjast afsökunar, allt í lagi að gefa þeim séns en BARA EINU SINNI!!! Ekki 5 þúsund sinnum eins og ég hef gjarnan gert... bara svona að deila þessu með ykkur þar sem ég hef brennt mig helvíti mikið á þessu :) Later babes...

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.08.2005 09:27:49 / Ragga

HITAMÁL!!!

Ég var að horfa á Opruh um daginn og þátturinn var um framhjáhöld... Það er hlutur sem hræðir mig meira en að stíga á geitungabú. Ég hef ekki lent í því að haldið hafi verið fram hjá mér (eða ekki svo ég viti) en ég myndi ekki meika það. Kallarnir í þættinum voru að viðurkenna að hafa haldið framhjá konunum sínum ekki bara einu sinni eða tvisvar, heldur ítrekað! Þeir náðu einhvern veginn að halda konunum sínum. Sem ég bara skil ekki! ...Kallarnir voru allir virkilega óheppilega útlítandi en áttu allir með tölu afskaplega myndarlegar konur. Hvað er að þeim.. Ef þeir halda framhjá einu sinni, gera þeir það aftur...ekki satt? Ég varð svo ógeðslega reið þegar ég horfði á þáttinn að þið trúið því ekki, það sauð af mér.:^) Það var samt soldið merkilegt hvað allar konurnar töldu það mikilvægt að hella sér yfir konurnar og hvað þær væru reiðar út í þær, en gleymdu að kenna karlpungunum sínum um. Ef einhver myndi halda framhjá mér þá myndi ég ekki einu sinni pæla í kellingunni ég myndi tjúllast á kallinn minn, myndi svo labba út og fara til Tælands og gleyma honum. Sama hvort ég væri gift og ætti barn eða börn með honum, mér finndist það bara enn meiri ástæða að fara frá honum. Það er kannski ekki eins auðvelt og það hljómar en þá myndi ég notfæra mér alla þá hjálp mögulega er hægt að fá sér. Mér finnst framhjáhald mesta óvirðing sem hægt er að sýna maka sínum og hvað er samband eða hjónaband ef maður ber ekki virðingu fyrir makanum. En kallarnir hjá Opruh sögðu 99,9% karlmanna stunda framhjáhöld, hvort sem það er satt eða einfaldlega að þeir hafi verið að reyna að draga úr því sem þeir hefðu gert þá finnst mér hræðilegt að heyra þetta. Reyndar  heyrði ég um daginn að einhver ný rannsókn sýndi það að það væri töluvert hærri prósenta kvenmanna sem héldu framhjá, það fannst mér mjög skrýtið því maður heyrir minna um svoleiðis mál, kannski ná konur þá bara að fela það betur!? tjahh...

Ég verð að segja það að þar sem ég var í löngu sambandi, þá er mjög erfitt að vera allt í einu ein. Maður verður svo háður aðilanum að það er eins og maður sé bara hálf manneskja þegar maður hættir með einhverjum. Ég er ennþá ekki búnað venjast því að sofa ein og þurfa að kúra með því að halda utan um hina sængina og horfa ein á video á kvöldin. Að sjálfsögðu langar manni í þessa hluti, hvað þá þegar allar vinkonur manns eru í samböndum og maður alltaf þriðja hjólið en er það þess virði þegar líkurnar eru svo miklar á að ég verði ógeðslega óhamingjusöm, hann haldi framhjá mér og allt fari til helvítis, þá held ég að sængin mín og ég sjálf sé betri félagsskapur :)

...HVAÐ FINNST YKKUR UM ÞETTA???...


» 22 hafa sagt sína skoðun

26.08.2005 22:18:53 / Ragga

BOOYAHH...

jújú ég er hérna alein heima í draugahúsinu mínu... að drekka hvítvín og bíða eftir að einhver af mínum fallegu vinum kíki á veiku stelpuna sína. Var í nöglum áðan þannig að þetta helv. blogg á eftir að taka aldeilis tíma. en svona er lífið og tilveran, beauty is fucking pain... langar ógeðslega mikið á djammið núna... en ég ætla að spara mig fyrir annnað kvöld þar sem vinur minn hann Bjössi er orðinn 25 ára gamall og ætlar að halda upp á það á Hverfisbarnum á morgun. Ásdís var hjá mér áðan og ég var að krulla á henni hárið.. hún fór héðan eins og ungfrú ísland... reyndar er stelpan alltaf gullfalleg en í kvöld...damn girl! ;) Ég er að pæla í að fara ein inní stofu að hlusta ein á jazz og dansa ein við.... drekka ein hvítvín og vera ein í eigin heimi.... hehe einmana? ha tjahh... ÆJ JÁ...ég var í prófi í dag og ég leit á prófið og bara sjittafokk... kunni ekki að gera neitt... nema það að allt í einu byrja ég að reikna og hver veit nema ég sé ekki bara búin að reikna allt prófið eins og einhver hafin reiknað þetta fyrir mig jújú ég á mér þræla hinu megin líka... ekkert smá hamingjusöm. Ég ætla að halda upp á það og setja á mig rauðan varalit, drekka hvítvínið mitt, reykja eina af mínum síðustu sígarettum og dansa... lalala...

P.S. Bara svo þið vitið það þá hef ég sjaldan verið hamingjusamari..

Bless Elskan....


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2005 20:34:34 / Ragga

...SHallalalala...

...ÆVINTÝRI ENN GERAST...!!! :P

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 15:53:07 / Ragga

Tvöfalt grænt te í vatn takk...

Jeminn eini.. þegar ég ætla aldeilis að byrja skólann með trompi, nær maður þá ekki bara í pest.. er búnað vera frá skóla í 2 daga núna og finnst mér það hræðilegt.. En ég er búnað sofa ágætlega mikið frekar en venjulega og drekka gríðarlega mikið af  grænu te og taka allskonar vítamín. Já ég ætla sko ekki að vera veik á morgun. Ég ætla í þetta blessaða próf og rústa því. Ég er reyndar ekkert of vongóð núna en þar sem hún Nína frænka mín eða réttar sagt systir mín ætlar að koma stærðfræðinni inn hjá mér þá er að birta til í mínu vonlausa hjarta...

Bara svona deila þessu með ykkur, meira var það ekki... :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2005 11:14:21 / Ragga

Það sem ég vildi segja en ekki þegja...

Ég fór á Skeleton Key í bíó í gær og já ef hún er ekki bara svona rosalega góð. Hún Kate Hudson fer á kostum í þessari mynd, eins og alltaf. Held rosalega upp á þessa leikkonu og einnig mömmu hennar, hana Goldie Hawn. Finnst þær svo eðlilega fallegar. Þetta er spennu-, drauga-, hryllingsmynd og getur maður ekki setið kyrr í sek. á henni. Ég fékk mér popp og fanta, bara svona til þess að deila því með ykkur.

Þið verðið að kaupa ykkur diskinn back to bedlam með james blunt já eða stela honum, þetta er skyldueign allra... Ég er ástfangin af honum.

Ég var að lesa um það í blaðinu í gær að komnar eru reyklausar sígarettur... þær virka sem sagt þannig að þú færð allan óþverran ofan í þig en þar sem það kemur enginn reykur úr þeim þá þarf fólkið í kringum þig ekki að deyja úr óbeinum reykingum. Þar sem ég reyki sjálf þá finnst mér reykurinn vera mjög mikill partur af því að reykja, en ég tala þá aðeins fyrir mig. ef það kæmi ekki reykur myndi ég reykja sígarettuna í einum smók þangað til það byrjaði að rjúka úr mér... En... það skiptir mig litlu máli því eftir aðeins örfáa daga verð ég reyklaus eins og allt fína fólkið ;)

Rob Schneider kemur á klakann í dag til að kynna myndina sína þarna Deuce Bigalow European Gigolo... Þessi maður fer svo í taugarnar á mér, skil ekki af hverju. En þetta er akkurat einn af þeim sem fólk annaðhvort þolir ekki eða elskar. Fæ gæsahúð við að sjá mynd af honum...

Fyrir ykkur karlmenn sem farið í líkamsræktarstöðina Laugar í Laugardalnum þá vildi ég segja ykkur að eigandi stöðvarinnar kom upp falinni myndavél í búningsklefanum vegna þjófa. Þannig að einhvers staðar er mynd af ykkur naked og allt staffið að horfa á það og hlægja..

Guð hvað þetta er sorglegt með strákinn sem var stunginn á Hverfisgötunni á laugardagsmorguninn. Maður veit aldrei hver verður næstur. Ég skil ekki hvað fær fólk til þess að gera svona hluti.. hafa samvisku í að taka son frá foreldrum sínum. En svona er víst lífið, nóg af sauðum sem ná ekki að setja sig í spor annarra áður en þeir fremja slíkan verknað.

Ég er í skólanum og verð því að fara að læra eitthvað í minn haus. Var að ná mér í kaffi, búnað tilbúa stærðfræðina hérna fyrir framan mig og ready to go..

Ble Ble...


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.08.2005 09:24:30 / Ragga

Fokkedy fokkedy fokk fokk..!

...jæja...skrautleg helgi að baki.. á laugardeginum var ég mikið að pæla í að vera heima en ákvað að skella mér í partý til eddu og jóa hennar... þetta var ágætis djamm en ekkert sem ég klappa fyrir... vorum þar alla nóttina... fór svo heim, svaf ekki neitt. Lét renna af mér og fór svo og sótti Ásdísi og Kára, fórum við þá í kringluna, ég keypti mér 2 geggjað sætar peysur og fórum við svo á cafe blue... um sexleytið fórum við Ásdís í afmæli til Benna bró, gátum ekki stoppað lengi því við áttum pantað borð á modonnu. Fórum þangað ég, Ásdís, Elena og Heiða Lind.. borðuðum þar æðislegan mat og drukkum eins og okkur væri borgað fyrir það.. lögðum svo af stað í bæinn en neinei misstum við ekki bara af flugeldasýningunni. allt fólkið á leiðinni úr bænum og vorum við 4 að labba á móti mörg þúsund manns... Við byrjuðum á Hverfis en hitti ég þar Eddu þar var hún voða sár (strákamál) ég stend yfir henni og reyni eins og ég get að láta henni líða betur fer með hana á klósettið og hugga hana, henni langaði að fara á Oliver, mig langaði líka en ég vildi ekki fara án krakkanna en gerði það á endanum enda vorkenndi ég henni, við erum fyrir utan að bíða eftir að okkur verði hleypt inn... nema það að eins og fokking venjulega stingur hún Edda mig af. Má hún eiga sig greyið, nenni ekki að standa í þessu veseni með hana alltaf hreint. Það eru óskráðar reglur hjá bestu vinkonum og er hún búnin að brjóta þær allar, ekki einu sinni eða tvisvar fokking endalaust oft. Ég er orðin svolítið þreytt á endalausum afsökunum frá bestu vinkonu minni. Alltaf tekur hún karlmenn yfir bestu vinkonu, karlmenn sem hún þekkir nánast ekki neitt. Þó ég segi sjálf frá þá er ég virkilega vinur vina minna og finnst mjög skítlegt hvernig edda vogar sér að koma svona fram við mig eftir ALLT sem ég hef gert fyrir hana! ....Edda ég vona að þú lesir þetta, það er ekki í fokking lagi með þig.. farðu að hugsa... sjálfelska þín er á toppnum... hugsar ekki um aðra en fokking sjálfa þig! Þú átt eftir að byrja að meta mig í framtíðinni þegar þú skokkar á vegg, sem og þú ert á leiðinni að gera! ... endilega komið með komment á þetta þið sem vitið um hvað málið snýst.

Takk BLESS!


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2